Vilja auknar heimildir til strandveiða

201
Deila:

Landssamband smábátaeigenda óttast að leyfilegur heildarafla strandveiðibáta verði upp urinn jafnvel mánuði áður en veiðitímabilinu lýkur og veiðar verði þá stöðvarar. Hefur sambandið farið fram á aflaheimildir verði auknar og veiðitímabilið verði allt ári, sérstaklega í ljósi neikvæðra áhrifa af völdun Covid-19 faraldursins. Um þessa stöðu er fjallað á heimasíðu LS:

„Veiðileyfi til strandveiða gildir í fjóra mánuði á ári, maí – ágúst.  Miðað við fjölda báta sem nú hafa hafið veiðar má gera ráð fyrir 13% fjölgun milli ára.  Landssamband smábátaeigenda skynjaði fljótt upp úr áramótum aukinn áhuga á strandveiðum.

Vegna líklegra áhrifa Covid-19 ritaði LS sjávarútvegsráðherra bréf í lok mars og óskaði eftir því að hann beitti sér fyrir að veiðitíminn mundi ná til 12 mánaða.  LS fékk stuðning við þá málaleitan frá bæjar- og sveitarfélögum sem leitað var til þó ekki væru þau öll inn á því að hafa veiðileyfið til 12 mánaða.

Ráðherra brást við beiðni LS með því að kynna í ríkisstjórn þann  30. apríl frumvarp um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.  Á fundi ráðherra með stjórn LS 15. maí greindi hann frá því að frumvarp frá honum væri í kynningu hjá þingflokkum stjórnarflokkanna.  Þar væri m.a. lagt til að heimilað yrði að róa á sunnudögum og ef aflaheimildum hefði ekki verið náð í lok ágúst yrðu strandveiðar heimilaðar í september.  Á fundinum lét hann þess getið að óvíst væri með framgang málsins þar sem það væri stopp í hans eigin þingflokki.

Þannig að gagn verði að þeim breytingum sem ráðherra leggur til í frumvarpinu er augljóst að auka þarf við viðmiðunarafla til strandveiða.  LS hefur ritað ráðherra bréf og bent á leiðir til þess.

Ítrekað skal að eins og staðan er í dag þá verður Fiskistofu skylt að auglýsa í Stjórnartíðindum stöðvun strandveiða, þegar ljóst er að afli nær 10.000 tonnum af þorski eða 100 tonnum af gullkarfa.  Líklegt er að þeim afla verði náð um mánaðamót júlí – ágúst.“

‚A myndinni eru strandveiðibátar að landa í Grindavík. Ljósmynd Hjörtur Gíslason.

 

Deila: