Haldið til veiða á ný

140
Deila:

Ísfiskogarar Síldarvinnslunnar og Bergs-Hugins héldu til veiða í gær að aflokinni sjómannadagshelgi. Gullver NS sigldi frá Seyðisfirði síðdegis í gær og Vestmannaeyjarskipin, Bergey VE og Vestmannaey VE, losuðu festar strax eftir hádegi í gær. Gert er ráð fyrir að Vestmannaeyjaskipin landi  nk. fimmtudag.

 

Bergey VE heldur til veiða í gær. Vestmannaey VE sigldi strax í kjölfarið. Ljósm. Guðmundur Alfreðsson. Efri myndina tók Smári Geirsson.

Frystitogarinn Blængur NK hélt til Barentshafsveiða í gær en ráðgert er að veiðiferðin taki 40 daga.

Uppsjávarskipin Börkur NK og Bjarni Ólafsson AK liggja enn í Norðfjarðarhöfn ásamt grænlenska skipinu Polar Amaroq en ráðgert er að Börkur og Bjarni Ólafsson haldi til kolmunnaveiða í færeyskri lögsögu í kvöld. Beitir NK er í slipp á Akureyri.

 

 

Deila: