Enginn erlendur aðili með meira en 1% hlut í íslenskum útgerðum

252
Deila:

Enginn erlendur aðili er skráður eigandi að yfir 1% hlut í íslensku útgerðarfélagi sem er með meira en 50 tonna aflamark. Þetta kem­ur fram í svari Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur  at­vinnu­vegaráðherra, við fyr­ir­spurn Ólafs Ísleifs­son­ar, þing­manns Miðflokks­ins. Tekið skal fram að upplýsingarnar byggjast á ársreikningum félaganna fyrir reikningsárið 2018 (þ.e. lista yfir hluthafa sem fylgja á með ársreikningum félaga) og er hér um að ræða hluthafa eða eigendur félaganna hvort sem um er að ræða einstakling eða lögaðila.
Vinnsla sjávarafurða er hvorki leyfis- né skráningarskyld sem slík. Hins vegar má vinnsla eingöngu fara fram í húsnæði sem hlotið hefur samþykkisnúmer Matvælastofnunar. Matvælastofnun heldur skrá yfir vinnslustöðvar sjávarafurða sem hlotið hafa samþykkisnúmer og þar má finna upplýsingar um rekstraraðila en þær upplýsingar varða ekki eignarhald fyrirtækjanna.
„Í fyrirtækjaskrá eru haldnar upplýsingar um raunverulega eigendur lögaðila sem skráðir eru í fyrirtækjaskrá samkvæmt lögum um skráningu raunverulegra eigenda, nr. 82/2019, með þeim takmörkunum sem greinir í lögunum. Einnig eru þar haldnar upplýsingar um raunverulega eigendur fjárvörslusjóða eða sambærilegra aðila. Ekki eru haldnar upplýsingar um raunverulega eigendur erlendra lögaðila í fyrirtækjaskrá.
Á grundvelli tilkynningarskyldu í 1. mgr. 7. gr. laga um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri hafa ráðuneytinu á síðustu tíu árum borist eftirfarandi fimm tilkynningar um fjárfestingu erlendra aðila í sjávarútvegi:
–      20. júlí 2010 var tilkynnt um fjárfestingu Nautilus Fisheries Ltd., Hong Kong, í Storm Seafood ehf. í gegnum einkahlutafélögin Skiphól ehf. og Austmann ehf.
–      29. maí 2013 var tilkynnt um fjárfestingu Agatha’s yard ehf. í Nóntanga ehf. Agatha’s yard ehf. er í eigu tveggja erlendra aðila en tilgangur Nóntanga ehf. er m.a. vinnsla sjávarafurða, fiskveiða og skyldur rekstur.
–      14. desember 2015 barst tilkynning frá HB Granda hf. á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga nr. 34/1991 um að í hlutaskrá félagsins væru skráðir eftirtaldir erlendu aðilar:
Global Macro Absolute Return Ad, Boston MA, hlutafjáreign 0,55% af heildarhlutafé félagsins.
Global Macro Portfolio, Boston MA, hlutfall af heildarhlutafé félagsins 0,45%.
Danske Bank A/S, hlutfall af heildarhlutafé félagsins 0,002744%.
JNL/Eaton Vance Global Macro Ab, hlutfall af heildarhlutafé félagsins 0,11%.
–      3. janúar 2016 barst tilkynning frá HB Granda hf. á grundvelli 1. mgr. 5. gr. laga nr. 34/1991 annars vegar um að annar erlendur aðili hefði bæst við í hlutaskrá félagsins og hins vegar um að erlendur hluthafi hefði bætt við eignarhlut sinn í félaginu:
Global Macro Capital Opportunit, hlutfall af heildarhlutafé félagsins 0,06%.
Global Macro Portfolio, hlutfall af heildarhlutafé félagsins 0,6%.
–      4. nóvember 2019 var tilkynnt um fjárfestingu K&B ehf. í Samherja hf. en K&B ehf. er að 49% hluta í eigu erlends aðila samkvæmt lögum nr. 34/1991. Samherji hf. stundar hvorki fiskveiðar í efnahagslögsögu Íslands né rekur fyrirtæki til vinnslu sjávarafurða hér á landi í eigin nafni en á að fullu eða að hluta fyrirtæki í slíkri starfsemi,“ segir í svarinu.

Hvorki er fylgst með né haldnar upplýsingar um þróun hlutdeildar óbeins eignarhalds erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum. Ekki er til sérstakrar skoðunar að setja frekari skorður við óbeinu eignarhaldi erlendra aðila í íslenskum sjávarútvegsfyrirtækjum umfram það sem þegar er að finna í lögum.

Deila: