Fleiri bátar og meiri afli

169
Deila:

Fiskistofa hefur tekið saman ýmsar upplýsingar um strandveiðarnar í  maímánuði og borið þær saman við fyrra ár.  Heldur fleiri bátar voru á veiðum í maí og aflinn reyndist um 130 tonnum meiri en  á sama tíma í fyrra. Athygli vekur að um 30 fleiri bátar en í fyrra stunduðu strandveiðar í maí á  svæði D. Af 590 bátum sem fengu strandveiðileyfi í maí voru 133 sem ekki höfðu stundað neinar aðrar veiðar á fiskveiðiárinu.  Þegar  strandveiðibátar ársins 2019 eru skoðaðir kemur í ljós að þeir stunda töluverðar veiðar  að hausti og svo aftur nú í vor fyrir strandveiðitímabilið en lítið er um að þeir stundi sjóinn frá nóvember og fram í mars.

Fjöldi veiðileyfa og skipting eftir svæðum

Í maímánuði voru 590 strandveiðileyfi gefin út hjá Fiskistofu. Alls voru 224 leyfi gefin út á A svæði, 110 á B svæði, 96 á C svæði og 160 á D svæði. Á sama tíma í fyrra höfðu 522 bátar fengið strandveiðileyfi. Þar af voru 208 á A svæði, 97 á B svæði, 88 á C svæði og 129 á D svæði. Af bátunum 590 sem fengu leyfi í maí stunduðu 535 bátar veiðar og lönduðu alls 3.833 sinnum.

Samtals 158 bátar lönduðu 10 sinnum eða oftar. Heldur færri bátar, eða 471, stunduðu veiðar í maímánuði í fyrra og lönduðu alls 3.731 sinni. Í maí í fyrra höfðu 184 bátar landað 10 sinnum eða oftar. veir bátar hættu á strandveiðum um mánaðarmótin maí/júní  og fluttu sig yfir í sinn fyrri flokk.

Veiðar

Alls var landað 2.384 tonnum af kvótabundnum botnfiski í maí en 85 tonnum af ufsa hefur verið landað til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins. Við lok mánaðarins hafði rúmlega 23% af þorskheimildunum verið landað, 4,7% af heimildum í ufsa og 8,9% í gullkarfa.

Í maí 2019 var landað 2.257 tonnum af kvótabundnum botnfiski en 89 tonnum af ufsa hafði verið landað til Verkefnasjóðs sjávarútvegsins. Þá hafði rúmum 20% af kvótabundnum í botnfiski verið landað en 8,9% af ufsaheimildum í verkefnasjóð.

Aflahæstu hafnir

Í maí hafði mestum afla verið landað á Patreksfirði, eða 238.189 kg í 335 löndunum en á sama tíma í fyrra var einnig landað mest á Patreksfirði, 218.633 kg í 309 löndunum.

Aðrar veiðar

Af þeim 590 bátum sem fengu strandveiðileyfi í maí voru 21 bátar sem höfðu ekki landað neinu á fiskveiðiárinu þann 31.05.2020. Þeir koma ekki fram á myndinni hér að neðan. 112 bátar stunduðu ekki aðrar veiðar yfir árið og eru ekki með almennt veiðileyfi.

Fyrir upphaf strandveiðanna voru 50 bátar með aflamarksveiðileyfi og 407 bátar með krókaaflamarksleyfi. Af þeim 457 bátum sem hafa almennt veiðileyfi þá höfðu 66 einnig nýtt sér grásleppuveiðileyfi á árinu.

Fiskistofa hefur einnig tekið saman upplýsingar um bátana sem voru á strandveiðum 2019.  Alls fengu 629 bátar strandveiðileyfi sumarið 2019 og 148 þeirra héldu áfram veiðum í september 2019. Eins og sést á línuritinu hér að neðan fækkar strandveiðibátum á öðrum veiðum mikið frá nóvember til febrúar en 110 voru síðan komnir aftur á veiðar í mars 2020. Af þeim 148 bátum sem héldu áfram veiðum í september 2019 voru 54 sem höfðu einnig verið á grásleppuveiðum 2019. Fjölda báta sem höfðu einnig stundað grásleppuveiðar má líka sjá hér fyrir neðan.

 

Deila: