Jafna hlut kynjanna í skipstjórnar- og vélstjóranámi

289
Deila:


Tækniskólinn og Faxaflóahafnir hafa undirritað samkomulag um aukið samstarf og aðgerðir
til að jafna hlut kynjanna í skipstjórnar- og vélstjóranámi. Markmið samkomulagsins er eftirfarandi.:
a) Að auka samstarf Tækniskólans og Faxaflóahafna sf. á þeim sviðum þar sem hagsmunir beggja
eiga samleið.
b) Að Faxaflóahafnir sf. leggi sitt að mörkum til að jafna hlut kynjanna í skipstjórnar- og
vélstjóranámi. Með því vilja Faxaflóahafnir gera störf í hafnarþjónustu fyrirtækisins
aðgengilegri fyrir konur.
c) Að leggi Tækniskólanum lið í þeim starfsgreinum sem tengjast starfsemi hafnarinnar og
mögulegt er að verða að liði, til þess að auðvelda konum náms- og stafsval og hvetja þær til
náms í iðngreinum, skipstjórn og vélstjórn.
d) Að auka samstarfs Tækniskólans og Faxaflóahafna á sviðu fræðslu og endurmenntunar
starfsfólks hafnarinnar.
Ofangreind markmið eru m.a. studd eftirfarandi aðgerðum:
1. Faxaflóahafnir eru reiðubúnar í samvinnu við Tækniskólann til að ráða tvær konur sem stunda nám
í skipstjórn eða vélstjórn frá maímánuði til loka ágústmánaðar ár hvert. Starf þeirra verði í
hafnarþjónustu fyrirtækisins þar sem þær fái starfsreynslu við móttöku skipa, vinnu um borð í lóðsog dráttarbátum fyrirtækisins og hafnsöguþjónustu.
2. Faxaflóahafnir sf. og Tækniskólinn munu útfæra sameiginlega tillögu að veitingu
viðurkenningar fyrir konu eða konur sem stunda nám í skipstjórn og vélstjórn.
3. Faxaflóahafnir munu eftir því sem kostur er aðstoða Tækniskólann um sumarstörf fyrir konur í
Bækistöð fyrirtækisins, sem gætu hentað nemum í vélvirkjun og trésmíði.
4. Faxaflóahafnir eru reiðubúnar til þess að liðsinna Tækniskólanum með verkefni fyrir nemendur
eftir því sem óskað er eftir og mögulegt er hverju sinni.
5. Tækniskólinn er reiðubúinn til að skipuleggja námskeið í siglingahermi skólans fyrir skipstjóra og
hafnsögumenn. Einnig er skólinn reiðubúinn að stuðla að endurmenntun og viðbótarmenntun
þeirra sem hafa þörf fyrir frekara nám í vélstjórn, skipstjórn og iðngreinum sem henta starfsfólki
Faxaflóahafna.
Tækniskólinn og Faxaflóahafnir vonast til þess að samstarf aðila skili árangri auk annarra aðgerða
Tækniskólans til að gera skipstjórnar- og vélstjóranám aðgengilegra og áhugaverðara fyrir konur.

Deila: