Kennsla um sjávarútveg á Tálknafirði

Í sumar var Sjávarútvegsskóli unga fólksins kenndur í fyrsta skipti í Vesturbyggð og í Tálknafirði. Þetta er verkefni sem unnið var í samstarfi vinnuskóla byggðarlaga, fiskeldis- og sjávarútvegsfyrirtækja, Hafnarsamlags Vesturbyggðar, fyrirtækja tengdum sjávarútvegi og Sjávarútvegsmiðstöðvar Háskólans á Akureyri. Fyrirtækin sem voru heimsótt voru Arctic Fish ehf., Arnarlax ehf. og Vélsmiðjan Logi ehf. Björgunarsveitin Blakkur á Patreksfirði tók einnig á móti krökkunum og fræddi þau um þeirra starfsemi.
Skólinn var kenndur í eina viku frá 21. júlí til 24. júlí. Samtals sóttu 22 nemendur skólann og eru þau á aldrinum 13-16 ára. Kennslufyrirkomulagið var þannig að nemendur fengu bóklega fræðslu í formi fyrirlestra og leikja, fengu að meta gæði fisks með skynmati, heimsóttu fyrirtæki í fiskeldi og fyrirtæki tengd sjávarútvegi þar sem þau fengu fræðslu um starfsemi fyrirtækja í sjávarútvegi, fyrirtækja í fiskeldi og björgunarsveita. Einnig voru kynntir fyrir þeim náms- og atvinnumöguleikar í greininni. Síðasta kennsludag var svo nemendum boðið upp á pizzaveislu og nemendur útskrifaðir.
Þrír kennarar fóru frá Akureyri vestur á Patreksfjörð til að kenna og gekk skólinn vel að mati kennara og annarra sem að skólanum komu.
Mynd og frétt af bb.is