Síðasti dagur strandveiða í ár

147
Deila:

Dagurinn í dag er síðasti dagur strandveiða. Þorskaflinn er kominn yfir þau mörk sem leyfileg eru og ekki eru heimildir til aukningar kvótans. Þorskafli nú er kominn vel yfir 10.000 tonn í fyrra varð þorskaflinn 8.200 tonn allt tímabilið. Fjallað er um málið á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda og segir þar svo:

„Kristján Þór Júlíusson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra greindi frá því, í viðtali í 10 fréttum Sjónvarps í gærkveldi, að ekki yrði bætt við aflaheimildum til strandveiða.  Ákvörðun ráðherra veldur gríðarlegum vonbrigðum.  Á sjöttahundrað útgerða verða að hætta veiðum þegar þriðjungur er eftir af veiðidögum í ágúst.

Í viðtalinu kom fram að heimildir hans til að auka veiðiheimildir til strandveiða væru bundnar við 5,3% pottinn.  Þar væru hins vegar engar veiðiheimildir á lausu og því yrði ekki bætt við.

Eins og fram hefur komið ákvað ráðherra með reglugerð þann 21. apríl sl. að skerða aflaviðmiðun til strandveiða.  LS óskaði eftir að ráðherra leiðrétti reglugerðina og færði hana í sama horf og var 2019.  Við því varð hann ekki.

Ennfremur er rétt að halda því til haga að LS óskaði eftir að ónýttar aflaheimildir frá strandveiðum 2019 bættust við heimildir þessa árs.  Því hafnaði ráðherra einnig og sagði lög ekki heimila færslu milli ára til strandveiða.“

Sjá frétt sem byrjar á 5:48

 

Deila: