MAST heimilar endurnýjun rekstrarleyfis að Stóru-Vatnsleysu

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Samherja fiskeldi ehf. vegna fiskeldis á landi að Stóru-Vatnsleysu á Vatnsleysuströnd. Um er að ræða endurnýjun á eldra rekstrarleyfi án breytinga, 1.600 tonna hámarkslífmassi á bleikju til matfiskeldis.
Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun á mast@mast.is. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 16. september 2020.
Tillaga að rekstrarleyfi Samherja fiskeldis ehf. að Stóru-Vatnsleysu