Frestur til að flytja aflaheimildir til 15. september

291
Deila:

Samkvæmt gildandi reglugerðarákvæði  um veiðar í atvinnuskyni verða umsóknir um staðfestingu Fiskistofu á flutningi aflamarks og krókaaflamarks á fiskveiðiárinu 2019/2020 að hafa borist Fiskistofu fyrir miðnætti þann 15. september nk.
Umsóknir sem berast eftir þann tíma verða ekki teknar til greina.

Fiskistofa hvetur handhafa aflaheimilda til að ljúka færslum á aflaheimildum við lok fiskveiðiársins í góðum tíma.

Aflamarksfærslur á tímabilinu 1. til 15. september

Fyrsta hálfa mánuð nýs fiskveiðiárs verður hægt að færa aflamark milli skipa bæði vegna fiskveiðiársins 2019/2020 og 2020/2021.

Fram til og með 15. september á það  við um rafræna millifærslukerfið þar sem hægt er að færa milli óskyldra aðila að það kerfi mun eingöngu nýtast til að færa aflamark sem tilheyrir fiskveiðiárinu 2019/2020.

Þurfi menn á þessu tímabili að færa aflamark innan nýja fiskveiðiársins 2020/2021 er nauðsynlegt að senda inn beiðni til Fiskistofu þar um með gamla laginu, þ.e. með  eyðublaði af vef Fiskistofu.  Tekið verður gjald fyrir aflamarksfærslur í samræmi við gjaldskrá stofnunarinnar.

Eftir 15. september verður síðan hægt að nýta rafræna kerfið til að millifæra aflamark innan nýja fiskveiðiársins.

 

Deila: