Hoffell með þúsund tonn af makríl

Hoffell kom til heimahafnar á Fáskrúðsfirði í gærkvöldi með 1000 tonn af makríl. Vel hefur gengið hjá Hoffellinu undanfarið og hefur það nú þegar landað tæpum 6000 tonnum af makríl. Löndun á aflanum hófst í morgun og gert er ráð fyrir að halda til veiða á ný á miðvikudag.
Sigurður Bjarnason skipstjóri á Hoffelli sagði í samtali á heimasíðu Loðnuvinnslunnar, að það þyrfti að sækja nokkuð langt til að finna makríl en það hefði gengið vel að þessu sinni og þessi 1000 tonn hefðu náðst á aðeins 38 klukkustundum.
Á síðasta ári hættu veiðar þann 10.september en árin þar á undan hélt veiðin út september. Sigurður skipstjóri sagði að fiskurinn væri allur austar núna. „Hann kemur úr norsku lögsögunni og við vorum að ná honum alveg við línuna” sagði skipstjórinn. Sigurði líst ágætlega á framhaldið þó að hann geri sér fulla grein fyrir því að það styttist í að fiskurinn fari á hrygningarstöðvarnar en það gerir hann þegar líður á haustið og ef eitthvað má byggja á fyrri reynslu virðist það vera gerast fyrr heldur en fyrir nokkrum árum.
Veðrið var með ágætum í þessum túr, þó kom kaldaskítur þegar Hoffellsmenn voru að draga inn síðasta holið en það lagaðist í nótt er leið.