Úthlutun aflamarks frágengin

213
Deila:

Fiskistofa hefur gengið frá úthlutun aflamarks og krókaaflamarks á fiskiskip á grundvelli hlutdeilda vegna fiskveiðiársins 2020/2021 sem hefst 1. september nk.
Nú þegar er hægt að skoða úthlutun á einstök skip á vef Fiskistofa síðar. Jafnframt sendir Fiskistofa útgerðum bréf með yfirliti yfir úthlutun á skip þeirra. 
Tekið skal skýrt fram að enn er úthlutun á nokkur skip ófrágengin vegna álitamála og þess vegna birtist ekki úthlutun á þau. Af þessum sökum er gerður fyrirvari um að úthlutun á öll skip getur enn breyst að einhverju leyti.
„Stefnt er að því að birta fyrir helgina samantekin yfirlit um úthlutun til fiskiskipaflotans ásamt skiptingu úthlutana eftir höfnum og fleiru.  Þetta eru gögn af því tagi sem Fiskistofa hefur hingað til ekki birt fyrr en eftir að fiskveiðiáramótin eru gengin í garð en  framvegis  er ætlunin að  koma slíkum upplýsingum á framfæri fyrir fiskveiðiáramótin. Vonast er til að þetta mælist vel fyrir,“ segir í frétt frá Fiskistofu.

Ljósmynd Hjörtur Gíslason

Deila: