Útflutningur í gámum dregst saman

198
Deila:

Landanir á fiskmörkuðum drógust saman um 12% á fyrri helmingi þessa árs. Alls fóru 46.475 tonn um markaðina nú, en 52.761 tonn í fyrra. Verðmætið nú var 11 milljarðar, sem er 12% samdráttur. 348.571 tonnum var landað í beinum viðskiptum. Það er samdráttur um 8%. Verðmætið nú var 40,4 milljarðar og jókst um 5%.

Alls voru 47.855 tonn fryst úti á sjó. Það er samdráttur um 15% frá síðasta ári. Verðmætið nú var 15,7 milljarðar króna og dróst saman um 8%. 11.162 tonn fóru í gáma til útflutnings. Það er 15% samdráttur. Verðmætið nú varð 3 milljarðar og nemur samdrátturinn frá síðasta ári 10%.

Hagstofa Íslands skráið svo 4.037 tonn undir aðrar löndunartegundir á fyrri helmingi þessa árs. Það nærri þriðjungs samdráttur frá árinu áður. Verðmæti afla sem fór þessa leið var nú 323 milljónir og samdráttur í verðmæti var hlutfallslega sá sami og í magninu.

Deila: