Hanna risavaxið „seglskip“

332
Deila:

Sænska skipahönnunarfyrirtæki Wallenius Marine hefur kynnt byltingakennda hönnun á nýju „seglskipi“, sem fengið hefur nafnið Oceanbird, eða Sjófuglinn upp a íslensku. Það er yfir 200 metra langt og mun geta borið 7.000 bíla í einu og gengið 10 mílur að meðaltali og gengur aðeins fyrir vindorku. Það mun taka 12 daga að sigla þvert yfir Atlantshafið og eru tilraunir með 7 metra langt líkan þegar hafnar.

Flutningar með skipum eru 90% af öllum flutningum í heiminum. Skipin eru að langmestu leyti knúin með díselolíu og skilja því eftir sig verulega sótspor. Því leita menn um allan heim leiða til að knýja skipin með endurnýjanlegri orku, vindorku og eða vistvænu rafmagni.

Skipið er búið með 80 metra há „segl“ úr málmi sem hægt er að hækka og lækka og haga eftir vindi. Það þarf engu að síður hjálparvél og skrúfu til að geta athafnað sig. Þessi hönnun mun þó leiða til verulegrar sjálfbærni í sjóflutningum verði hún að veruleika.

Deila: