Fjórum bjargað úr báti í vanda

Þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og sjóbjörgunarsveitir slysavarnafélagsins Landsbjargar á Suðaustur- og Austurlandi voru kallaðar út á mesta forgangi í gær eftir að lítið fiskiskip tók niðri á grynningu austur af Papey í kvöld. Leki kom að fiskiskipinu og fjórir voru um borð. Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar barst neyðarkall frá áhöfn skipsins klukkan 20:55. Þyrla Landhelgisgæslunnar var á æfingu þegar útkallið barst og tók rakleiðis stefnuna á slysstað.
Jafnframt óskaði Landhelgisgæslan eftir því að skip og bátar í grenndinni héldu á staðinn. Klukkan 21:20 hafði tekist að bjarga öllum fjórum skipverjunum um borð í fiskibát sem kom á staðinn.
Fiskibáturinn var síðan dreginn inn til Djúpavogs.