Veiðidagar verði aldrei færri en 48

Tillaga sjávarútvegsráðherra um breytingar á strandveiðikerfinu lagðist afar illa í fundarmenn á aðalfundi Snæfells. Einhugur var um að mótmæla því harðlega að hverfa aftur til fyrra veiðikerfis sem allir flokkar á Alþingi samþykktu að leggja af 2018. Þar hefði vegið þungt að breytingin mundi auka öryggi sjómanna á strandveiðibátum. Nú væri brýnt að stíga lokaskrefið í átt til öruggari veiða með því að tryggja að dagar til strandveiða verði aldrei færri en 48 talsins. Frá þessu er greint á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda. Þar segir ennfremur.
Grásleppumál
Einhugur var um að fordæma vinnubrögð sjávarútvegsráðherra við framkvæmd grásleppuveiða á síðustu vertíð. Með þeim hefði grásleppuútgerðum verið freklega mismunað og skemmdarverk unnið á stjórnkerfi veiðanna.
Mestur hluti grásleppuumræðunnar fór hins vegar í að ræða hvort áfram ætti að byggja veiðistjórn á núgildandi kerfi eða kvóta á hvern bát. Bæði kerfin hefðu sína kosti og galla. Samkomulag var um að ef sett yrði á aflamark yrði að tryggja að allir sem væru með grásleppuleyfi í dag fengju einhverja veiðiheimildir.
Línuívilnun
Mikilvægi línuívilnunar væri nú meira en oft áður, þegar horft væri til aukins atvinnuleysis. Bregðast þyrfti við með að hækka ívilnun úr 20% í 30% og tryggja öllum dagróðrabátum línuívilnun.
Sektir í stað reglugerðarlokana
Á fundinum var rædd skýrsla starfshóps um „faglega“ endurskoðun varðandi notkun veiðarfæra, veiðisvæða og verndunarsvæða á Íslandsmiðum. Hugmyndum hópsins um lokun svæða fyrir handfæraveiðum var harðlega mótmælt. Í stað reglugerða- og skyndilokana á handfæraveiðar ætti að beita sektum eða sviptingu veiðileyfis á þá aðila sem koma með of smáan fisk að landi.
Stjórn Snæfells
Runólfur Kristjánsson formaður
Bergvin Snævar Guðmundsson
Guðlaugur Gunnarsson
Lúðvík Smárason
Valentínus Guðnason