Ögg hyggst ala 12 tonn af bleikju árlega

247
Deila:

Matvælastofnun hefur unnið tillögu að rekstrarleyfi fyrir Ögg ehf. vegna fiskeldis á landi að Kjarvalsstöðum við Hjaltadalsá í Hjaltadal. Um er að ræða nýtt rekstrarleyfi þar sem hámarkslífmassi miðast við 12 tonn af bleikju, seiða- og matfiskeldi.

Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar Matvælastofnun.  Frestur til að skila inn athugasemdum er til 2. nóvember 2020.

 

Deila: