Eimskip til fyrirmyndar

232
Deila:

„Eimskip er eitt þeirra 842 fyrirtækja sem þykja framúrskarandi árið 2020 og erum við afskaplega stolt af þeim árangri. Það er ekki sjálfgefið að vera hluti af þessum 2% framúrskarandi fyrirtækja en að baki liggur mikil vinna starfsfólks sem hefur metnað til að standa sig vel,“ segir í frétt frá Eimskip.

Á hverju ári gefur Creditinfo út lista yfir fyrirtæki sem þykja framúrskarandi út frá lykiltölum í rekstri. Greiningin hefur verið gerð árlega í 11 ár og þurfa fyrirtæki að uppfylla strangar kröfur til að vera flokkuð sem framúrskarandi.

Auk Eimskips eru dótturfélögin TVG-Zimsen og Gára einnig á listanum.

 

Deila: