Norðurslóðir og Ísland

286
Deila:

Norðurslóðir og Ísland ± 50 ár. Breytingar á umhverfi og samfélagi síðustu 50 árin og við hverju má búast næstu hálfa öld

Í dag þann 5. nóvember verður kynning á rannsóknum á náttúrufari og félagsþáttum í sjö erindum. Öll erindin munu fjalla um breytingar á náttúrufari og samfélagslegum þáttum síðastliðin 50 ár og spáð fyrir hver framvinda þeirra breytinga verði næstu 50 árin. Fjallað verður um veðurfar, jökla, vistkerfi sjávar, lands og ferskvatns. Auk þess verður fjallað um félagslega þætti og gefið yfirlit yfir norðurslóðarannsóknir sem tekið hefur verið saman af Rannís.

Kynningarnar verða þann 5. nóvember, kl. 13:00 – 14:30 og verður hægt að fylgjast með þeim á veraldarvefnum með því að skrá sig og tengjast í gegnum þennan hlekk

https://us02web.zoom.us/webinar/register/WN_sg7EsW4LT36PwStEtPFoiw

 

Deila: