Ekkert Covid-smit um borð

COVID-sýnataka skipverja á frystitogaranum Baldvini Njálssyni GK 400 reyndist neikvæð. Skipinu var siglt frá Ísafjarðardjúpi til Hafnarfjarðar í nótt eftir að maðurinn veiktist og sýndi einkenni sem bentu til kórónuveirusmits.
Þorsteinn Eyjólfsson, skipstjóri á Baldvini, segir að niðurstaða hafi fengist úr skimuninni um hádegisleytið, en skipverjinn fór í skimun um leið og hann kom í land í Hafnarfirði snemma í morgun. Ákveðið var að sigla þangað í stað þess að fara í höfn á Ísafirði því þar er þungfært og tafir hefðu getað orðið á að senda sýnið til greiningar.
Áhöfnin fór í skimun áður en skipið hélt til veiða síðastliðinn mánudag og reyndust þá allir skipverjar neikvæðir.
Frétt af ruv.is