Rekstrarleyfi Hólaskóla til tilraunaeldis í Verinu, Sauðárkróki endurnýjað

107
Deila:

Matvælastofnun hefur endurnýjað rekstrarleyfi Hólaskóla – Háskólans á Hólum í Verinu, Háeyri 1, Sauðárkróki í samræmi við lög um fiskeldi. Matvælastofnun auglýsti tillögu að rekstrarleyfi á vef stofnunarinnar þann 2. nóvember 2020 og var frestur til að skila inn athugasemdum til 30. nóvember 2020.

Hólaskóli – Háskólinn á Hólum sótti um endurnýjun á rekstrarleyfi vegna 14 tonna hámarkslífmassa til tilraunaeldis í Verinu, Sauðárkróki. Umsókn um endurnýjun á rekstrarleyfi var móttekin 16. janúar 2020. Úttekt starfsstöðvar hefur farið fram og staðfestir Matvælastofnun gildistöku rekstrarleyfis Háskólans á Hólum að Háeyri 1 Sauðárkróki FE-1156 en starfsemin er einnig háð starfsleyfi Umhverfisstofnunar.

Heimilt er að kæra ákvörðun Matvælastofnunar um útgáfu rekstrarleyfisins til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála og er kærufrestur einn mánuður frá birtingu þessarar auglýsingar.

 

Deila: