Spáir brjáluðu veðri

86
Deila:

Frystitogarinn Höfrungur III AK var í dag í kantinum norðan Patreksfjarðar og segir skipstjórinn, Haraldur Árnason, í samtali á heimasíðu Brims, að afli sé sæmilegur eða um fimm til sex tonn í síðasta holi. ,,Við komum hingað í nótt og mér sýnist að það verði stuttur stans að þessu sinni. Það spáir brjáluðu veðri í kvöld og sama spá er fyrir morgundaginn. Við verðum sennilega að flýja suður fyrir land og mér kæmi ekki á óvart að reynt verði við djúpkarfa í Skerjadjúpi næstu daga.”

Höfrungur III hefur verið 12 daga í veiðiferðinni en í túrnum á undan var aflinn samtals um 725 tonn upp úr sjó.

,,Núna erum við á höttunum eftir öllu öðru en þorski. Við vorum í Reykjafjarðarálnum, þar sem var mjög góð ýsuveiði í tæpa tvo sólarhringa, og einnig á Strandagrunni. Það er búin að vera töluverð ótíð en síðustu dagar hafa samt verið ágætir. Skipin hafa fengið eitthvað af þorski á Þverálshorninu og einnig á Strandagrunni en Halinn hefur verið óvenju daufur. Þar er nú lítið af ufsa og reyndar hefur gengið erfiðlega að finna ufsa um þessar mundir.”

Að sögn Haraldar hefur hann litlar spurnir af aflabrögðum syðra en látið verði reyna á þau vegna veðurspárinnar á Vestfjarðamiðum.

 

 

Deila: