Varðskipið Þór sækir vélarvana Lagarfoss

228
Deila:

Varðskipið Þór er nú á leið í átt að flutningaskipinu Lagarfossi sem varð vélarvana um 230 sjómílur suðvestur af Garðskaga í gær. Eimskip hafði samband við Landhelgisgæsluna um hádegisbil í gær og tilkynnti um bilunina og spurðist fyrir um hvort mögulegt væri að fá varðskipið Þór til að taka Lagarfoss í tog.

Áhöfnin á varðskipinu var kölluð út í gærkvöldi þegar ljóst var að viðgerð um borð í Lagarfossi hafði ekki borið árangur. Varðskipið Þór lét úr höfn í Reykjavík á öðrum tímanum í nótt og búast má við að það verði komið að Lagarfossi að morgni þriðjudags.

Taug verður þá komið á milli skipanna og gera má ráð fyrir að drátturinn taki allt að tvo sólarhringa. Ætla má að að skipin verði komin til hafnar í Reykjavík á gamlársdag.

 

Deila: