„Stofnvísitala þorsks í frjálsu falli“

188
Deila:

„Stjórn LS skorar á sjávarútvegsráðherra að efna til gagngerrar endurskoðunar á þeirri aðferðafræði sem Hafrannsóknastofnun hefur lagt til grundvallar ráðgjöf sinni undanfarna áratugi.  Það er hverjum manni augljóst að hún stenst ekki þær væntingar sem gerðar voru til hennar.“

Þetta kemur fram í ályktun stjórnar Landssambands smábátaeigenda, sem haldinn var þann 29. desember. Þar var meðal annars til umræðu nýútkomin skýrsla Hafrannsóknastofnunar:  Stofnmæling botnfiska að haustlagi 2020.

Niðurstaða umræðna var að vekja athygli á og lýsa áhyggjum vegna lækkunar á stofnvísitölu þorsks, sem mælist nú aðeins rúm 40% af því sem hún mældist í haustralli árið 2017.

„Samkvæmt skýrslunni er stofnvísitala þorsks í frjálsu falli, lækkar nú fjórða árið í röð og er rúm 40% af því sem hún mældist í haustralli árið 2017.

Mælingar úr haustralli stofnunarinnar staðfesta niðurstöður úr vorralli 2020 að stærð árganga 2014 og 2015 (5 og 6 ára) er langt frá því sem gert var ráð fyrir.   Árgangarnir hafa látið verulega á sjá.  Líklegast er að þeir hafi liðið fyrir vanveiði undanfarinna ára þar sem magn af stórþorski hefur vaxið gríðarlega.  Samdráttur í helstu fæðutegundum stórþorsksins, þ.e. loðnu, síld og kolmunna, virðist hafa stuðlað að stórauknu sjálfráni. Það hefur aukist um 100% milli ára.,“ segir ennfremur í ályktun LS.

 

 

Deila: