Ísfisktogararnir landa

82
Deila:

Ísfisktogarar Síldarvinnslunnar og Bergs-Hugins komu úr fyrstu veiðiferð ársins í vikunni. Bergey VE kom til hafnar í Vestmannaeyjum í fyrradag með um 60 tonn. Uppistaða aflans var ýsa. Vestmannaey VE kom síðan til löndunar í gær með 55 tonn og var aflinn þar einnig að mestu ýsa. Að sögn Arnars Richardssonar rekstrarstjóra í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar byrjar árið snemma að þessu sinni en í fyrra komust skip Bergs-Hugins ekki á sjó fyrr en 13. janúar vegna veðurs.

Gullver NS var að landa á Seyðisfirði í gær. Afli skipsins er 65 tonn og er uppistaðan þorskur og ýsa. Vegna hamfaranna í desember er ekki landað úr skipinu við frystihúsið heldur við Strandarbakka. Er þetta í fyrsta sinn sem fiski er landað þar en ferjan Norræna er afgreidd við Strandarbakka. Að sögn Ómars Bogasonar er gert ráð fyrir að vinnsla í frystihúsinu geti hafist í fyrri hluta næstu viku en unnið er að hreinsunarstarfi á Seyðisfirði af eins miklum krafti og unnt er.

 

Deila: