Óverulegar breytingar á fiskverði

103
Deila:

Nýtt viðmiðunarverð var ákveðið á fundi hagsmunasamtaka sjómanna (SSÍ, FS, VM) og útvegsmanna (SFS, LS), sem haldinn var 5. janúar 2021. Ákveðið varað breyta viðmiðunarverði samkvæmt kjarasamningum á eftirfarandi hátt:

Slægður þorskur hækkar um 1,0%
Óslægður þorskur hækkar um 2,0%
Slægð ýsa lækkar um 3,2%
Óslægð ýsa helst óbreytt
Slægður og óslægður ufsi hækkar um 3,7%
Karfi hækkar um 2%

Þetta á við afla sem ráðstafað er til eigin vinnslu eða seldur til skyldra aðila. Breytingin tekur gildi 5. janúar 2021.

 

Deila: