Þokkalegasta kolmunnaveiði

96
Deila:

Bjarni Ólafsson AK, Beitir NK og Börkur NK hafa verið að kolmunnaveiðum suður af Færeyjum að undanförnu. Bjarni Ólafsson er á landleið með fullfermi og Beitir og Börkur eru langt komnir með að fylla. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi í morgun við skipstjórana á Bjarna Ólafssyni og Beiti um veiðarnar.

Runólfur Runólfsson, skipstjóri á Bjarna Ólafssyni, sagði að skipið kæmi til löndunar í Neskaupstað í kvöld. „Við erum með fullfermi eða 1810 tonn en veiðin hófst 5. janúar sl. Aflinn fékkst í sjö holum en það er mjög lengi dregið eða frá 18 tímum og upp í 32. Stærsta holið okkar var 505 tonn en það minnsta 130. Veiðin fer fram í færeysku lögsögunni alveg við skosku línuna. Það hefur verið töluverður straumur en veiðin hefur engu að síður gengið þokkalega. Það er spurning hve lengi er unnt að veiða þarna því fiskurinn er að ganga suður eftir og hann spáir ekki vel. Það fer brátt að bræla og síðan verður vart veiðiveður fyrr en um miðja næstu viku,“ segir Runólfur.

Tómas Kárason, skipstjóri á Beiti, sagði að veiðiferðin hefði gengið vel. „Við erum komnir með tæp 3000 tonn og erum væntanlega á okkar síðasta holi. Það hefur verið hörkugangur í þessu. Við erum með nýtt troll frá Hampiðjunni og það virðist svínvirka. Aflinn hjá okkur hefur gjarnan verið töluvert meiri en hjá öðrum þrátt fyrir að við höfum dregið í styttri tíma. Við höfum verið að draga frá 6 tímum og upp í 24 og fengum til dæmis mjög gott hol eftir 12 tíma. Við erum nú á okkar ellefta holi og síðan verður lagt af stað í land síðar í dag eða í kvöld með fullfermi,“ segir Tómas.

Börkur var að toga í morgun og vantar um 400 tonn til að fylla.

Gert er ráð fyrir að Beitir og Börkur muni landa í Neskaupstað og á Seyðisfirði.

 

Deila: