Próteinverksmiðjur Héðins reynast vel

163
Deila:

Flestar fiskimjölsverksmiðjur á Íslandi hafa notið góðs af sérþekkingu Próteinverksmiðju Héðins (HPP), sem býr yfir mikilli reynslu við að útvega og þjónusta búnað til framleiðslu á mjöli og lýsi bæði á landi og um borð í fiskiskipum.

Verkfræðingarnir hjá Héðni hafa verið frumkvöðlar í nýrri nálgun við þróun Próteinverksmiðju Héðins (Hedinn Protein Plant), þar sem saman fara einföld tækjastjórnun og afar lofandi niðurstaða hvað varðar orkunýtingu, mannafla sem þarf til að stýra búnaðinum,  fyrirferð búnaðarins og framúrskarandi vörugæði.

„Fyrsta HPP-kerfið var sett upp um borð í Sólbergi ÓF-1, togara Ramma, sem hóf veiðar árið 2017,“ segir Ragnar Sverrisson, framkvæmdastjóri Héðins í samtali á heimasíðu Íslensku sjávarútvegssýningarinnar.

Verksmiðjutogararnir Ilivileq, Berlin, Kirkella og Emeraude, allir smíðaðir á síðustu árum, eru einnig með HPP-kerfi um borð, og síðan er búnaður í notkun á landi við vinnslu á afskurði af lögum í Færeyjum allt yfir í vinnslu á skelfiskúrgangi í Bandaríkjunum. Nú hefur Héðinn einnig selt HPP-kerfi til norsku fiskvinnslunnar Grøndvedt Nutri, þar sem framleiðslan er nýfarin af stað.

„Þessi uppsetning er klárlega viðurkenning fyrir Héðin,“ segir hann.

Fyrir utan eigin verkfræðigetu hefur Héðinn lengi átt í samstarfi við Kongsberg Maritime sem fulltrúi þess fyrirtækis á Íslandi, allt frá því það gekk undir nafninu Rolls Royce. Héðinn hefur verið með umboð fyrir allt það sem Kongsberg hefur upp á að bjóða, allt frá skipahönnun yfir í vindur og ýmis konar skipaþjónustu.

Héðinn hefur einnig tekið þátt í Íslensku sjávarútvegssýningunni IceFish frá upphafi, og stefnir á að auka viðveru sína þetta árið.

„Þessi sýning hefur alltaf reynst okkur vel,“ segir Ragnar Sverrisson.

„HPP-kerfin okkar til framleiðslu á mjöli og lýsi hafa farið í gegnum langt prófunar- og matsferli, og nú ætlum við að sýna þau á Íslensku sjávarútvegssýningunni með stærri bás en nokkru sinni. Við stefnum á að verða stjarna sýningarinnar árið 2021,“ segir hann.

 

Deila: