Þorskmok í Víkurálnum

201
Deila:

Ísfisktogarinn Akurey AK kom til hafnar í Reykjavík í gærmorgun með um 180 tonna afla. Eiríkur Jónsson, skipstjóri, segist hafa hitt á mikið af þorski vestast í Víkurálnum og góð veiði hafi reyndar verið víðar.

,,Við hófum veiðar í þessum túr á utanverðu Látragrunni og þaðan unnum við okkur norður með kantinum. Við fengum mokveiði af þorski á horninu vestast í Víkurálnum. Þetta var stór og góður fiskur, fjögurra til fimm kílóa, og með þorsknum fengum við dálítið af ýsu og ufsa,” segir Eiríkur í samtali á heimasíðu Brims, en hann segir að lítið hafi verið af loðnu í fisknum á Vestfjarðamiðum.

Eiríkur Jónsson í brúnni á Akurey.

,,Við fórum síðan suður á Reykjanesgrunn en þar höfðu togarar verið í góðri ufsaveiði. Síðan vörðum við síðustu tæpu tveimur dögunum í Skerjadjúpinu. Þar fengum við ágætan djúpkarfaafla í síðustu tveimur birtingunum. Þá var túrinn búinn og það vantaði ekki nema nokkur kör upp á fullfermi.”

Akurey var með rúmlega 6.000 tonna afla á síðasta ári og Eiríkur segist ekki annað geta en verið ánægður með árangurinn.

,,Frátafir frá veiðum voru miklar. Við vorum um tíu daga frá vegna bilunar í stýri í upphafi ársins og svo bættust tveir mánuðir við á meðan verið var að setja niður þriðju togvinduna. Það er framkvæmd sem á eftir að borga sig. Það er ekki bara í tregveiði sem tvö troll, sem veitt er í einu, hafa sannað sig. Ég get nefnt karfaveiðar sem dæmi. Þar er himinn og haf á milli þess að nota eitt eða tvö troll samtímis. Fyrir þessa breytingu hefði mátt þakka fyrir fjögur til fimm tonn af djúpkarfa á dag en núna getum við tvöfaldað þann afla,” segir Eiríkur Jónsson.

 

 

Deila: