Risavaxið eldisskip?

265
Deila:

Í Noregi hefur fyrirtækið Eidsfjord Sjøfarm AS hafið þróun á eldisáformum í sjó í risavöxnu skipi sem yrði 270 metra langt og 42 metra breitt og með 6 eldiskör í lokuðu umhverfi. Sjór verður sóttir í körin úr hafinu djúpt undir skipinu svo hann verði laus við laxalús og önnur sníkjudýr. Körin sex eiga að taka samtals 69.000 rúmmetra af sjó.

Segir í kynningu frá fyrirtækinu að þessar hugmyndir séu til þess að vinna að því markmiði stjórnvalda  að fjórfalda laxeldið fram til 2050 upp í 5 milljón tonn af eldislaxi á ári.

Ætlunin er að seiðin verði í eldisskipinu þar til þau hafa náð um 2,5 kg stærð en þá verði fiskurinn fluttur í opnar sjókvíar og alinn áfram upp í sláturstærð.
Þetta kemur fram á netsíðunni kyst.no

Deila: