Krókabátur fær loðnu fyrir þorsk

195
Deila:

Fiskistofa lauk nýlega úrvinnslu á tilboðum sem bárust í aflamarksskipti í febrúar. Um var að ræða skipti á þorski innan lögs0gu fyrir loðnu, norsk-íslenska síld og þorsk í lögsögu Noregs. Athygli hefur vakið að þar var tekið tilboði útgerðar krókabátsins Kristjáns HF í skipti á loðnu fyrir þorsk. Fjallað er um þetta á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda. Segir þar svo:

„Þar vekur sérstaka athygli að krókaaflamarksbáturinn Kristján HF lætur frá sér 732 tonn af þorski og fær í staðinn 1.066 tonn af loðnu.  Hlutfallið 0,687 sýnir að loðnan er afar dýrmæt um þessar stundir þar sem ígildastuðull hennar var 0,13 á fiskveiðiárinu 2019/2020.

Annar vinkill er sá að veiðigjald fyrir hvert kíló af lönduðum þorski á árinu 2021 er 16,63 kr/kg, en á loðnu var það á síðasta ári 32 aurar.  Veiðigjald fyrir loðnu á yfirstandandi ári hefur ekki verið gefið út.

Nú kunna ýmsir að spyrja hvort hægt sé að færa loðnu á krókaaflamarksbát þar sem honum er óheimilt að nota önnur veiðarfæri en línu og handfæri og á því enga möguleika á að veiða loðnu.

Mun Fiskistofa geta síðan heimilað flutning loðnunnar af krókaaflamarksbátnum yfir á skip í aflamarki?

Rétt er að vekja athygli á að þó Fiskistofa hafi tekið tilboðunum, þá hefur færsla milli skipa ekki farið fram.  Það er því óvíst á þessari stundu hvert framhald þessa máls verður.

Boltinn er hjá Fiskistofu.“

 

Deila: