Opnað fyrir umsóknir í rannsóknasjóð síldarútvegsins

167
Deila:

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrki í Rannsóknarsjóð síldarútvegsins. Sjóðurinn styrkir að þessu sinni fræðslu- og kynningarefni í sjávarútvegstengdu námi við grunnskóla og á framhaldsskólastigi. Gerð er krafa um að fræðslu- og kynningarefni styrkt af sjóðnum verði öllum aðgengilegt á netinu án gjalds.

Umsóknarfrestur er til 5. apríl og nánari upplýsingar er að finna á vef sjóðsins hjá Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi https://sfs.is/greinar/rannsoknarsjodur-sildarutvegsins/

 

Deila: