Ísey dregin til hafnar í Grindavík

210
Deila:

Rétt fyrir klukkan 8 í morgun var björgunarsveitin Þorbjörn kölluð út vegna vélarvana skips rétt um þrjár sjómílur frá Grindavík. Lagt var af stað á björgunarskipinu Oddi V. Gíslasyni rétt upp úr klukkan 8 og var komið til hafnar í Grindavík rétt fyrir klukkan 10, með skipið í togi. Frá þessu er greint á fésbókarsíðu björgunarsveitarinnar.

„Félagar í sveitinni eru eðlilega á tánum vegna jarðhræringa og hrukku margir við þegar útkallsboð bárust í síma félagsmanna í morgun en sem betur fer var lítil hætta á ferðum og margir hverjir hreinlega ánægðir með tilbreytinguna Vel gekk að koma skipinu að bryggju þrátt fyrir hundleiðinlegt veður.

Fleiri myndir frá þessu verkefni má finna á Instagram síðunni okkar. Hvetjum alla til þess að fylgja okkur þar enda eitthvað skemmtilegt um að vera þar,“ segir ennfremur á síðunni.

https://instagram.com/bjsvthorbjorngrindavik

 

Deila: