Gullver hálfnaður í togararalli

150
Deila:

Gullver NS kom til Seyðisfjarðar laust fyrir hádegi í fyrradag og landaði þar um 22 tonnum af fiski sem fengist hefur í togararallinu sem skipið tekur þátt í. Heimasíða Síldarvinnslunnar ræddi við Rúnar L. Gunnarsson skipstjóra og spurði fyrst hvernig honum líkaði í rallinu.

„Þetta er bara fínt og hefur gengið vel. Við erum búnir að vera átta sólarhringa og höfum togað á 84 stöðvum af 151 sem eru á okkar svæði, en það nær alveg frá Kolbeinsey og suður að Hvalbak. Við gerðum ráð fyrir að nota eina 20 daga í þetta en veðrið er búið að vera gott þannig að þetta hefur gengið betur en gert var ráð fyrir.

Gullver er að fara í sitt fyrsta rall en Steinþór Hálfdanarson stýrimaður þekkir þetta vel og hefur farið í mörg röllin á Bjarti og Barða. Nú eigum við eftir stöðvarnar fyrir norðan, eða frá Kolbeinsey og austur á Langanesgrunn. Vonandi gengur jafn vel að toga á þeim og á stöðvunum hér fyrir austan,“ segir Rúnar.

Gullver lagði úr höfn í gærkvöldi og hóf síðari hluta rallsins. Þá settist Þórhallur Jónsson í skipstjórastólinn.

Ljósm. Ómar Bogason

 

Deila: