Línuívilnun endurvakin

137
Deila:

Reglugerð um línuívilnun hefur verið breytt þannig að viðmiðun í þorski á tímabilinu 1. júní til og með 31. ágúst 2021 er færð til yfirstandandi tímabils.  Þorskafli tímabilsins verður því innan þeirra marka sem kveðið er á um.

„Í bréfi sem LS ritaði sjávarútvegsráðherra 11. febrúar sl. er farið fram á að viðmiðun til línuívilnunar verði aukin þannig að hún gildi allt fiskveiðiárið.  Bent var á að viðmiðun í þorski og ýsu til ívilnunar hefðu verið skertar úr hófi fram á sl. þremur árum.  Ástæðan væri að hún hefði ekki verið nýtt að öllu leyti.  Af sömu ástæðu er eðlilegt að bæta við þegar afli til línuívilnunar er meiri en gert hafði verið ráð fyrir.

Þetta er sagt hér til áréttingar kröfum LS að hækka verður aflaviðmiðun til að geta mætt afla til línuívilnunar fyrir allt fiskveiðiárið.“ Segir í frétt frá Landssambandi smábátaeigenda.

 

 

Deila: