Aðalfundur Brims verður rafrænn

105
Deila:

Aðalfundur Brims hf. verður alfarið rafrænn þann 25. mars næstkomandi. Í fundarboði aðalfundar Brims hf. var tilgreint að gætt yrði að gildandi fyrirvörum stjórnvalda um fjöldatakmarkanir, nálægðarmörk og sóttvarnir. Stjórnvöld hafa í dag boðað til ráðstafana vegna fjölgunar kórónuveirusmita og sett meðal annars á 10 manna fjöldatakmarkanir, auk annarra íþyngjandi ráðstafana sem tóku gildi á miðnætti og gilda næstu þrjár vikur.
Fundurinn fer fram á íslensku og hefst klukkan 17. Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, eru beðnir um að skrá sig tímanlega á vefsíðunni www.smartagm.com. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.
Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá á netfanginu: adalfundur@brim.is

Nánari upplýsingar á heimasíðu Brims https://www.brim.is/brim/fjarfestar/adalfundur2021/

Deila: