D-Tech fær fjármögnun frá Nefco

265
Deila:

Íslenska tæknifyrirtækið D-Tech hefur fengið fjármögnun frá Nefco til að efla útflutning á vistvænni sótthreinsitækni fyrir matvælaiðnað. D-Tech hefur þróað nýja sótthreinsitækni fyrir matvælaiðnað sem notar mun minna vatn og sótthreinsiefni en hefðbundnar aðferðir. Græn fjármögnun Nefco, sem ætluð er til að bregðast við áhrifum heimsfaraldursins, gerir fyrirtækinu kleift að opna nýjar söluskrifstofur og efla framleiðslugetu í austur-Evrópu. Stóraukin eftirspurn er eftir vistvænum sótthreinsikerfum í matvælaiðnaði vegna faraldursins.

„Vitund fólks um sótthreinsun hefur aukist gríðarlega í heimsfaraldrinum og auk þess eru matvælafyrirtæki sífellt að verða meðvitaðri um umhverfissjónarmið í framleiðslunni,“ segir Guðmundur Sigþórsson, framkvæmdastjóri D-Tech.

D-Tech var stofnað árið 2014 og eru sótthreinsikerfi þess nú í notkun hjá öllum stærstu fiskvinnslufyrirtækjum á Íslandi og fjölda matvælafyrirtækja erlendis. Tæknin byggir á því að spreyja sótthreinsandi efnalausn inn í framleiðslurýmið með sérstöku úðakerfi. Þannig myndast þétt þokumistur sem sótthreinsar alla fleti og framleiðslubúnað og drepur bakteríur eins og listeríu og kampýlobakter.

„Aðferðin er mun umhverfisvænni en hefðbundnar sótthreinsiaðferðir í matvælaiðnaði. Kerfið okkar minnkar notkun á sótthreinsiefnum um 70-80% og vatnsnotkun um allt að 90%. Þar að auki styttir tæknin þrifatíma heilmikið, sem gerir það að verkum að verðmætur vinnslutími lengist,“ útskýrir Guðmundur.

D-Tech er nú að ljúka vöruþróun á sótthreinsikerfi fyrir minni matvælafyrirtæki, ásamt nýrri tækni til sótthreinsunar farartækja sem flytja matvæli. Hin nýja tækni, D-Truck, minnkar verulega óþarfa akstur með tóma flutningavagna.

Helstu markaðir D-Tech eru Ísland og Pólland, en fyrirtækið er með dótturfélag í Póllandi. Félagið ætlar nú að efla markaðssetningu á vistvænum sótthreinsikerfum sínum í Bretlandi og Litháen og stefnir einnig á aukin umsvif í austur-Evrópu og á Norðurlöndum.

„Það getur verið erfitt fyrir fyrirtæki af okkar stærðargráðu að fá bankafjármögnun. Fjármögnunin frá Nefco er okkur því mjög mikilvæg og gerir okkur kleift að nýta þau gríðarlegu tækifæri sem skapast hafa á erlendum mörkuðum vegna Covid.“

Nefco er alþjóðleg fjármálastofnun sem fjármagnar frumuppskölun á umhverfisvænni tækni og sjálfbærum lausnum frá Norðurlöndum á erlendum mörkuðum. Í nýrri stefnu Nefco er lögð áhersla á aukinn stuðning við minni og meðalstór útflutningsfyrirtæki. Stofnunin býður nú nýja tegund lánsfjármögnunar sem auðveldar fyrirtækjunum að efla útflutning í kjölfar heimsfaraldursins. Sjá nánar á www.nefco.int/green-recovery.

D-Tech er íslenskt tæknifyrirtæki sem framleiðir og þróar sjálfvirk sótthreinsikerfi fyrir matvælaiðnað. Helstu viðskiptavinir fyrirtækisins eru markaðsleiðandi fyrirtæki í fiskvinnslu, laxeldi og annarri matvælaframleiðslu. Sótthreinsikerfi D-Tech nota mun minna vatn og sótthreinsiefni en hefðbundnar aðferðir í matvælaiðnaði. Dótturfélag fyrirtækisins í Póllandi, D-SAN Technical Solutions, hefur náð sterkri stöðu á pólska markaðnum.

 

Deila: