Nýr Vilhelm á heimleið

18
Deila:

Vilhelm Þorsteinsson EA 11 sigldi inn fyrir 200 mílna lögsögu Íslands í gærmorgun og voru þessar fallegu myndir teknar við það tilefni. Myndatökumaður var Árni Rúnar Hrólfsson. Skipið mun koma til heimahafnar á Akureyri kl.10.00 á laugardagsmorgun og leggjast að við Togarabryggjuna. „Vegna sóttvarnarráðstafana verður því miður ekki hægt að hafa skipið til sýnis að svo stöddu en fyrir áhugasama minnum við á klukkutíma þátt á sjónvarpsstöðinni N4 sem sýndur verður á mánudaginn annan í páskum kl. 20.00,“ segir í frétt frá Samherja.

Deila: