Sjaldséður hvalreki

132
Deila:

Norðsnjáldri (Mesoplodon bidens) af ætt svínhvala (Ziphidae) fannst rekinn dauður í síðustu viku í svokallaðri Bót við bæinn Höfða II, skammt sunnan við Grenivík í Eyjafirði. Kristinn Ásmundsson bóndi á Höfða II tilkynnti um hvalrekann, sem telst til tíðinda því aðeins er vitað um átta önnur tilvik hér við land síðan Hafrannsóknastofnun hóf skráningu hvalreka með skipulögðum hætti um 1980. Fyrsti staðfesti fundurinn var árið 1992 við bæinn Ós í Breiðdal og síðast árið 2018, þegar tarf rak á land í Höfðavík í Vestmannaeyjum. Þetta kemur fram á heimasíðu Násttúruminjastofnunar.

Dýrið í Eyjafirði var 4,73 m að lengd, líklega fullorðinn tarfur, en stærstir verða norðsnjáldrar 5−5,5 m og allt að 1,5 tonn. Líkt og aðrir tannhvalir lifa norðsnjáldrar mest á bein- og brjóskfiskum og smokkfiski, en almennt er lítið vitað um lífshætti dýranna.

Óvíst er um ævilengd norðsnjáldra, en miðað við aðra svínhvali geta þeir orðið 15−30 ára að jafnaði. Dýrin eru gráleit og dekkri á baki en kviði. Á baki eru oft rispur og rákir, líklega eftir slagsmál. Enda þótt norðsnjáldri tilheyri tannhvölum hefur hann aðeins eitt par af tönnum, líkt og latneska nafn hans gefur til kynna, bidens – tvær tennur. Tennurnar eru á miðjum neðri kjálka, en aðeins í karldýrum því kýrnar eru tannlausar.

Norðsnjáldrar finnast í Norður-Atlantshafi, aðallega djúpt úti og meira í því austanverðu en vestan hafs, með suðurmörk við 30.−40. breiddargráðu nærri New York flóa og Kanaríeyjum og norðurmörk nyrst við Noreg við 70. breiddargráðu. Norðsnjáldrar halda sig mest fjarri landi djúpt á hafi úti og eru auk þess mjög styggir. Um stofnstærð er því ekki vitað, hvorki hér á landi né hjá Alþjóðanáttúruverndar-sambandinu (IUCN) eða Umhverfisstofnun Evrópusambandsins (EEA).

Sérfræðingur á vegum Hafrannsóknastofnunar, Sverrir Daníel Halldórsson, fór á vettvang hvalrekans ásamt útibússtjóra stofnunarinnar á Akureyri, Hlyni Péturssyni, og mældu þeir hvalinn og tóku sýni til nánari rannsókna. Ekki var annað að sjá en að norðsnjáldrinn væri í góðu líkamlegu ástandi, en engar fæðuleifar fundust í maga hans og ekkert plast heldur, sem að undanförnu hefur fundist í töluverðu magni í mögum hvala af svínhvalaætt. Dánarorsök er ókunn.

Hvalshræið var urðað í fjöru þar sem það verður látið rotna. Beinagrindin verður hirt síðar og rannsökuð og einnig má nota hana í sýningahaldi, að sögn Hilmars J. Malmquist forstöðumanns Náttúrminjasafnsins. Á Hvalasafninu á Húsavík er beinagrind norðsnjáldra til sýnis.

 

Deila: