Fiskistofa innheimti veiðigjöld að upphæð 4,8 milljörðum í fyrra

132
Deila:

Veiðigjald innheimt af Fiskistofu var á síðasta ári 4,8 milljarðar króna. Það lækkaði milli ára úr 6,7 milljörðum Árið 2018 var gjaldið 11,3 milljarðar. Breytingar á gjaldinu eru í takt við afkomu sjávarútvegsfyrirtækjanna.

Fiskistofa annast álagningu og innheimtu veiðigjalds, samkvæmt. lögum um veiðigjald og gjald vegna ólögmæts sjávarafla, samkvæmt lögum. Veiðigjald er lagt á landaðan afla og er það lagt á mánaðarlega fyrir næstliðinn mánuð. Veiðigjald er tiltekin krónutala á hvert kg landaðs afla, mismunandi eftir fisktegundum.

Fiskistofa leggur á gjald vegna ólögmæts sjávarafla á grundvelli laga og annast innheimtu gjaldsins fyrir hönd Verkefnasjóðssjávarútvegsins. Við almenna álagningu gjaldsins er gert upp jafnóðum og ákvarðanir eru teknar í málum.

Fiskistofa hefur einnig með höndum álagningu gjalds vegna ólögmæts afla strandveiðibáta. Þegar um strandveiðar ræðir er lagt á gjald sem nemur verðmæti þess afla sem er umfram 650 þorskígildiskíló í veiðiferð. Gjaldinu er skipt hlutfallslega eftir tegundum. Álagning fer fram mánaðarlega. Tilkynningar um álagningu vegna strandveiða á árinu 2020 voru alls 1.295 og fjölgaði um 132 frá 2019. Nam upphæð gjaldsins sem lagt var á 42,9 milljónum kr.sem er hækkun upp á 1,1 milljón.

Deila: