Vel blandaður afli

84
Deila:

Snemma í gærmorgun kom ísfisktogarinn Gullver NS til löndunar á Seyðisfirði. Skipið var með rúm 108 tonn af blönduðum afla. Þórhallur Jónsson skipstjóri segir að veðrið hafi verið misjafnt í veiðiferðinni.

„Við vorum fimm daga á veiðum og fengum skítaveður í tvo daga. Veitt var frá Hvalbakshalli og vestur í Skeiðarárdýpi. Fyrir austan var sjórinn kaldur og ekki mikið af fiski þannig að við þurftum að fara vestur eftir í hlýrri sjó. Aflinn í túrnum er vel blandaður; þorskur, karfi, ufsi og ýsa,” segir Þórhallur í samtali á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Gullver hélt á ný til veiða síðdegis í gær.

 

 

Deila: