Formennsku LHG í ACGF lokið

115
Deila:

Tveggja ára formennsku Landhelgisgæslu Íslands í samtökum strandgæslna á norðurslóðum lauk á fjarfundi á föstudag. Strandgæslustofnanir átta ríkja, Bandaríkjanna, Danmerkur, Finnlands, Íslands, Kanada, Noregs, Rússlands og Svíþjóðar, mynda samráðsvettvanginn. Á fundinum ræddu forstjórarnir helstu áskoranir á norðurskautinu og upplýstu um helstu verkefni og áskoranir sinna stofnana. Georg Kr. Lárusson undirritaði, fyrir hönd hópsins, yfirlýsingu um áframhaldandi samstarf strandgæslustofnananna. Í lok fundar tóku Rússar við formennsku í ráðinu og verða í forsvari fyrir samtökin næst tvö árin.

Landhelgisgæslan og hinar strandgæslurnar sjö hafa haldi upp reglubundnu samtali undanfarin tvö ár. Botninn var sleginn í formennskutíð Landhelgisgæslunnar í vikunni með umfangsmikilli æfingu sem nefndist Arctic Guardians Workshop þar sem þátttakendur þurftu að bregðast við árekstri olíubirgðaskips og farþegaskips. Samhliða fór fram ráðstefna á vegum Landhelgisgæslunnar, Háskólans á Akureyri og Norðurslóðanetsins.

Sem betur fer eru mengunarslys í norðri ekki algeng en á æfingu sem þessum gefst afar brýnt tækifæri til að skiptast á þekkingu og upplýsingum helstu sérfræðinga og strandgæslna sem í hlut eiga.

Á meðan Landhelgisgæslan gegndi formennsku var sértök áhersla lögð á að efla samstarf ríkjanna átta enn frekar vegna leitar og björgunar á svæðinu auk þess sem mengunarvarnir og umhverfismál voru sett á oddinn.

Georg Kr. Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, óskaði rússnesku strandgæslunni velfarnaðar og þakkaði fyrir afar gott samstarf strandgæslustofnanna á undanförnum tveimur árum.

 

Deila: