Hagstæðari afkoma Eimskips

97
Deila:

„Samkvæmt stjórnendauppgjöri fyrir fyrsta ársfjórðung 2021 sem nú liggur fyrir lítur út fyrir að EBITDA á fyrsta ársfjórðungi 2021 verði hagstæðari en fram kom í tilkynningu frá félaginu í síðustu viku. Nú er áætlað að EBITDA verði á bilinu 15,9 til 16,6 milljónir evra, í stað 13,9 til 14,9 milljónir evra, samanborið við 9,3 milljónir evra á sama ársfjórðungi síðasta árs. Að teknu tilliti til væntra afskrifta má gera ráð fyrir að EBIT fjórðungsins verði á bilinu 4,2 til 4,9 milljónir evra, í stað 2,2 til 3,2 milljóna evra, samanborið við neikvætt EBIT að fjárhæð 1,6 milljónir evra á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs.“

Svo segir í tilkynningu frá Eimskipi til Kauphallarinnar og segir þar ennfremur:

„Helsta ástæða betri afkomu en gert var ráð fyrir í fyrri afkomu tilkynningu var of varfærið mat á áætluðum tekjum í mars og gert hafði verið ráð fyrir meiri áhrifum af þeim krefjandi aðstæðum sem eru á erlendum mörkuðum á flutningsmiðlunarstarfsemi félagsins. Að auki voru áhrif af IFRS 16 vanmetin vegna endurnýjunar á leigusamningum um leiguskip og fasteignir.

Þrátt fyrir að framangreindar upplýsingar sýni umtalsverða hækkun á rauntölum úr rekstri milli tímabila þá er hún innan marka afkomuspár ársins 2021 sem er á bilinu 68 til 77 milljónir evra. Þá var EBITDA á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs undir væntingum eins og kynnt hefur verið.

Vinna við uppgjör fyrsta ársfjórðung stendur yfir og getur afkoman tekið breytingum þar til henni er lokið.

Eimskip birtir uppgjör fyrsta ársfjórðungs 2021 eftir lokun markaða þriðjudaginn 11. maí.“

 

Deila: