Fisktækniskólinn útskrifar nemendur á vorönn

Útskrift vorannar hjá Fisktækniskóla Íslands fór fram föstudaginn 21. maí 2021 á einum fallegasta degi ársins hingað til. Skólar í landinu hafa þurft að sýna mikinn sveigjanleika og aðlögunarhæfni þar sem allir hafa þurft að aðlagast sveiflum veirunnar sem herjað hefur á heiminn undanfarin misseri en það hefur gengið mjög vel í Fisktækniskólanum þrátt fyrir að sérstakar áskoranir felist í að halda uppi ákveðnum þáttum námsins sem samanstendur af staðnámi, fjarnámi og vinnustaðanámi. Við horfum afar stolt yfir hópana sem hafa útskrifast þessa vorönn og vitum að þau öll og auðvitað við starfsfólk líka höfum lagt á okkur þessa auknu vinnu sem þurfti til að láta þetta allt ganga upp.
Alls hafa 39 nemendur útskrifast á vorönn en að þessu sinni var hver hópur útskrifaður fyrir sig vegna sóttvarna. Samantekt yfir útskrifaða nemendur á vorönn er eftirfarandi: Átján sem útskrifuðust úr Grunnnám-fisktækni-fiskeldi, Sjö nemendur útskrifuðust úr Fisktækni, þar af þrír sem höfðu einnig lokið smáskipanámi og þrír með vinnuvélaréttindi sem kennd voru af aðilum frá Keili. Einn útskriftarnemi lauk fiskeldisnámi til viðbótar við Fisktækninámið og annar lauk námi í Sjávarakademíu með sínu Fisktækninámi. Sjö nemendur luku námi í Marel vinnslutækni. Einn lauk námi í veiðarfæratækni. Tíu nemendur útskrifuðust úr Sjávarakademíu úr Haftengdri nýsköpun þar af einn sem lauk líka Fisktækni.
Framtíðin er björt hjá öllu þessu fólki sem hefur menntað sig til þess að starfa í undirstöðu atvinnugrein þjóðarinnar sem hefur verið í gífurlegri framþróun á síðustu misserum og mun verða um ókomna framtíð.
Þess má einnig geta að þann 17. maí undirrituðu Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri fiskiðnaðar Marel og Ólafur Jón Arnbjörnsson skólameistari Fisktækniskóla Íslands samstarfssamning til þriggja ára um nám í Marel vinnslutækni. Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra var viðstödd við athöfnina sem fór fram í höfuðstöðvum Marel.