Þörungablómi hamlar strandveiðum fyrir Suðurlandi

203
Deila:

Tölur um strandveiðar sýna meiri mismun milli veiðisvæða heldur en áður hefur verið.  Veiðislóðin fyrir Suðurlandi var þakin þörungablóma sem kom í veg fyrir að veiðar gengju sem skyldi.  Afli í róðri var að meðaltali 500 kíló sem er fjórðungi lægra en á árinu 2020.

„Tölurnar staðfesta rækilega hversu náttúruöflin hafa sterk áhrif á strandveiðarnar,“ segir í frétt á heimasíðu Landssambands smábátaeigenda.

Á öðrum svæðum sjást ekki viðlíka tölur þó þær séu ekki með öllu jákvæðar nema á svæði C, þar sem afli í róðri jókst að meðaltali um 13 kg milli ára.

Heilt yfir er þó ekki annað að sjá en strandveiðar hafi gengið vel í maí.  Alls 135 bátar náðu að nýta alla daga sem í boði voru og 50 bátum vantaði aðeins einn dag upp á að ná í tólfuna.  Til samanburðar voru aðeins 31 bátur sem tókst að ná fullum fjölda í maí á síðasta ári, en eins og menn muna voru brælur þá afar tíðar.

Fiskverðið er annar stór þáttur í útgerð strandveiðibáta.  Maí skilaði 287 kr/kg meðalverði fyrir þorsk, mismunur 66 kr frá í fyrra.

Agla ÁR 79 varð aflahæst strandveiðibáta í maí með 10.749 kg. 

Deila: