Aflaverðmæti nam 43 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi

205
Deila:

Landað aflamagn á fyrsta ársfjórðungi 2021 var 239,2 þúsund tonn sem er 32% meira en á fyrsta ársfjórðungi 2020. Aukningin er komin til af um 71 þúsund tonna loðnuveiði, en engin loðna veiddist árið 2020.

Verðmæti afla við fyrstu sölu nam 43,2 milljörðum króna á fyrsta ársfjórðungi 2021 sem er 26% meira en á sama tímabili árið 2020 þegar aflaverðmæti var rúmlega 34 milljarðar króna. Loðnuveiðar skiluðu um 8 milljörðum króna. Verðmæti botnfisktegunda fyrstu þrjá mánuði ársins 2021 var 32 milljarðar króna sem er 2% aukning frá fyrra ári samkvæmt frétt Hagstofu Íslands.

Afli og aflaverðmæti á fyrsta ársfjórðungi 2020 og 2021
Tonn/Milljónir krónaAflamagn, janúar-marsAflaverðmæti, janúar-mars
 20202021%20202021%
34.30343.179
Samtals180.855239.2043234.30343.17926
Eftir mánuðum
janúar35.79158.998657.45910.01834
febrúar51.66476.2064811.98714.83324
mars93.399104.0001114.85718.32723
Eftir fisktegund
Botnfiskur124.604137.5371031.52232.0872
Þorskur79.38185.163722.13322.1930
Ýsa13.72715.859163.2823.83517
Ufsi12.08515.201261.9502.19012
Karfi13.06713.29023.1422.794-11
Annar botnfiskur6.3438.024261.0141.0766
Flatfiskafli2.8915.433881.1852.02571
Uppsjávarafli52.78595.452811.4628.913510
Síld1.4941.59976610153
Loðna070.72808.218
Kolmunni51.29023.125-551.396594-57
Makríll0000
Annar uppsjávarafli0000
Skel- og krabbadýraafli5766461213415314
Humar32-233324
Rækja3414713810211917
Annar skel- og krabbadýrafli232173-2530311
Annar afli013600
Deila: