Fernt heiðrað í Grindavík

377
Deila:

Við hátíðlega athöfn í Grindavíkurkirkju fór fram heiðrun á vegum Sjómanna- og vélstjórafélags Grindavíkur.

Vilhjálmur Árnason þingmaður flutti æviágrip og formaður SVG Einar Hannes Harðarson veitti heiðursorðu og blómvendi .

Nú voru það heiðurshjónin Þorbjörg Halldórsdóttir og Önundur G Haraldsson ásamt þeim Þórhalli Stefánssyni og Guðmundi Snorra Guðmundssyni , öll eiga þau sameiginlegt að hafa og verið öflugir og virkir félagsmenn í S.V.G

Önundur , Þórhallur og Guðmundur Snorri eiga að baki langan og gæfusaman sjómannsferil , voru allir á sjó í fimm áratugi og hálfum betur .

Þorbjörg var fyrsti starfsmaður S.V.G og vann á skrifstofunni í rúman áratug , hafði einnig aðkomu að Sjómannadagsblaði Grindavíkur um 25 ára skeið.

Á myndinni eru frá vinstri Einar Hannes Harðarson formaður SVG , Guðmundur Snorri Guðmundsson, Þórhallur Stefánsson , Önundur G. Haraldsson og Þorbjörg Halldórsdóttir.

Deila: