Lavango afhendir karakerfi til Einhamars Seafood í Grindavík

Nýverið lauk Lavango ehf uppsetningu á heildarlausn í sjálfvirku karakerfi til bolfiskvinnslu Einhamars Seafood. „Einhamar er öflugt og framsýnt sjávarútvegsfyrirtæki sem starfrækir vinnslu og útgerð í Grindavík. Lavango hannaði kerfið í samstarfi við Einhamar, framleiddi og setti upp búnaðinn, fyrst karahvolfarann í nóvember og svo var síðasti liður kerfisins, karaþvottavél, kara snúningur og staflari frá Semistaal í Danmörku afhent og tengd við karakerfið nú á dögunum. Karakerfið fer mjög vel með hráefnið, það matar sjálfvirkt inn, bæði smáan sem stóran fisk og skilar að lokum körunum hreinum, upp stöfluðum út úr kerfinu,“ segir í frétt frá Lavango.
Kerfið virkar þannig að karastæðum er komið fyrir á inntökuband karahvolfarans. Þá er körunum afstaflað með “de-stacker” og þannig fer eitt kar í einu inn í karalyftu sem lyftir körunum upp um 2,3 metra. Þá er karinu hvolft á ísskiljuband og fer fiskurinn þaðan inn á hausarana. Karinu er þá fullhvolft á annað færiband sem hangir í lofti vinnslunnar og færir körin yfir í annað rými. Þar fer karið í karalyftu sem færir það aftur niður og beint inn í karaþvottavél sem eftir stutta stund skilar körunum fullhreinum og klárum til notkunar á ný.

Að sögn Öldu Agnesar, framkvæmdastjóra Einhamars, hefur innmötun til flökunar gjörbreyst með tilkomu nýja innmötunarkerfisins frá Lavango. Lyftaravinna hefur minnkað til muna og meðferð á afla er betri, innmötun hraðvirkari og sjálfvirk og hráefnið helst því kaldara í gegnum vinnsluferilinn. Hráefninu er ráðstafað í kerfið inni í kæli, þannig að körin standa aldrei fram á gólfi eins og áður gerðist. Þar að auki er meðferð kara betri og karaþvottur miklu betri en áður. Körin eru þvegin jafn óðum en safnast ekki upp yfir daginn. „Það eru í raun annar litur á þeim en öðrum körum – svo hrein eru þau!“ – segir Alda Agnes Gylfadóttir
Jón Hlífar Aðalsteinsson, sölustjóri Lavango, var brattur þegar fréttamaður ræddi við hann. „Jú, framleiðslan og uppsetningin á búnaðinum gekk einkar vel. Það er auðvelt að vinna með góðu fólki. Einhamar er virkilega frambærilegt fyrirtæki og einhamarsfólk tóku vel á móti okkar mönnum og kunnum við þeim bestu þakkir fyrir samstarfið.“
