Minna fer utan af fiski frá Færeyjum
Útflutningur af sjávarafurðum frá Færeyjum mælt í verðmæti dróst saman um 13% á síðasta tólf mánaða tímabili, frá maí 2020 til apríl 2021. Samdrátturinn nemur um 20 milljörðum íslenskra króna en verðmæti alls á umræddu tímabili var 161 milljarður íslenskra króna.
Á umræddu tímabili fluttu Færeyingar út 466.704 tonn af sjávarafurðum, sem er samdráttur um 62.248 tonn, eða 12%. Af þorski fóru utan 19.444 tonn, sem er samdráttur um 8.829 tonn, eða 31% og verðmætið lækkaði sömuleiðis um 31%. Samdráttur í ufsa var 2% í magni og 7% minna fór utan af ýsu.
Sala á makríl dróst saman um 12%, í síld var samdrátturinn 6% en af kolmunna fóru utan um 50.000 tonn, sem er nánast það sama og á sama tímabili á undan. Af laxi fóru utan 66.104 tonn að verðmæti 68 milljarðar. Það er samdráttur í verðmæti um 9%, en aukning í magni um 3%.