Nýsköpun öflugasta verkfæri verðmætasköpunar

268
Deila:

Ráðstefna um framtíð íslensks sjávarútvegs og fiskeldis fór fram í Hörpu þriðjudaginn 22. júní síðastliðinn. Þar var kynnt nýleg skýrsla um stöðu og horfur í sjávarútvegi hér á landi og rætt um þau tækifæri og áskoranir sem blasa við. Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri nýsköpunar, samfélagsábyrgðar og fjárfestatengsla hjá Brim, flutti erindi og ræddi mikilvægi nýsköpunar í greininni.

„Í raun má segja að fiskveiðistjórnunarkerfið hafi verið eitt stærsta skref nýsköpunar í íslenskum sjávarútvegi síðustu 40 árin. Kerfið leiddi til þess að við fórum að stunda sjálfbærar veiðar og kom í veg fyrir ofveiði. Ef við hefðum ekki gert þetta, tel ég líklegt að við værum sem þjóð ekki á þeim stað sem við erum á í dag“, segir Gréta í erindi sínu.

Gréta María fjallaði um mikilvægi þess að taka þátt í nýsköpun og ýta undir framþróun í greininni. Fyrirtæki eigi að horfa til þess að með nýsköpun verður til vöruþróun og verðmætasköpun. Mikilvægt sé að taka þátt í rannsóknarverkefnum, þau búi til nýja tækni, og einnig sé mikilvægt að kaupa vörur og þjónustu af frumkvöðlum. „Ásamt þessu þurfum við líka að ræða þær áskoranir sem við stöndum frammi fyrir í rekstrinum. Það er ábyggilega einhver þarna úti sem er að þróa eða hefur þróað lausn til að takast á við þær áskoranir. Vandamálin eiga því ekkert að vera eitthvert leyndarmál, því ef við segjum frá og leggjumst á eitt getum við pottþétt leyst þau,“ benti hún á.

Gréta nefndi dæmi um það sem Brim hefur verið að gera í nýsköpun, þar á meðal það grettistak sem lyft hefur verið í slysavörnum og öryggi, bæði til sjós og lands. Þá má nefna sorpflokkunarstöðvarnar, sem eru í stöðugri framþróun og hvernig veiðarfæri og úrgangur frá þeim geta öðlast framhaldslíf.

Í lokin fór hún yfir af hverju nýsköpun er mikilvægt verkfæri fyrirtækja í dag. „Ef við ætlum að halda forystuhlutverki okkar í sjávarútvegi á heimsvísu verðum við að vera með betri afurðir en aðrir. Við erum lítið samfélag en í því liggja tækifærin; skjót viðbrögð, að vera á undan með nýjungar. Með stöðugri þróun tryggjum við að sjávarútvegur verði áfram sá burðarstólpi í íslensku samfélagi sem hann hefur verið og sköpum um leið verðmæti til framtíðar.“

Hér er hægt að sjá ráðstefnuna – erindi Grétu hefst á 46. mínútu.
https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/frettir/stok-frett/2021/06/21/Radstefna-22.juni-Framtid-islensks-sjavarutvegs-og-fiskeldis-Taekifaeri-og-askoranir/

Deila: