Túnfiskur tilkynningaskyldur
Þar sem túnfiskur getur veiðst sem meðafli í uppsjávarveiðum þá vekur Fiskistofa athygli á að það þarf að tilkynna allan túnfiskafla til Fiskistofu án tafar.
Túnfiskmeðafli reiknast af túnfiskkvóta Íslands en allur túnfiskur er tilkynningaskyldur til ICCAT, Alþjóðaráðsins um varðveislu Atlantshafstúnfisks. Engin íslensk skip halda til túnfiskveiða í ár, enda virðist of kalt í sjónum til að fiskurinn gangi inn í lögsöguna.
Hér er að finna eyðublað sem nota á til að tilkynna um veiddan túnfisk.